Nýtt, tímabundið tækifæri til sölu ökutækja úr landi
Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Nái frumvarpið fram að ganga, opnast tímabundið tækifæri fyrir eigendur ökutækja til að selja ökutæki sín úr landi og fá endurgreiddan hluta af vörugjöldum og virðisaukaskatti. Þetta mun að líkindum gera það að verkum að bílar frá Íslandi verði samkeppnishæfur kostur á mörkuðum erlendis.

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að virðisaukaskattur og vörugjöld, sem greidd voru af bifreiðum við tollafgreiðslu þeirra, myndi endurgreiðslugrunn. Endurgreiðsluhlutfallið lækki með aldri bílsins frá tollafgreiðsludegi. Þannig er gert ráð fyrir að grunnurinn lækki um 2% fyrir hvern byrjaðan mánuð fyrstu 12 mánuðina og um 1,5% á mánuði eftir það, þar til fyrning hefur náðst að fullu rúmum 5 árum eftir tollafgreiðslu. Endurgreiðsla virðisaukaskatts nær ekki til þeirra ökutækja sem hafa notið innskatts en í slíkum tilfellum yrðu vörugjöld endurgreidd eftir sömu reglum og að ofan greinir.

Eru öll ökutæki söluhæf erlendis?
Eftirspurn eftir ökutækjum erlendis er ekki óáþekk því sem hér tíðkast. Þó er lítil efitirspurn eftir amerískum bílum í Evrópu og breyttir jeppar eru sjaldnast til útflutnings fallnir. Meðalstórir fjölskyldubílar verða trúlega hagkvæmastir í útflutningi en væntanlega verður einhver eftirspurn eftir lúxusbílum og nýlegum smærri bílum. Útflutningur á bílum eldri en fimm ára verður trúlega síður áhugaverður þar sem endurgreiðsluákvæði laganna ná ekki til þeirra.

Hvernig getur bílasala Reykjavíkur liðsinnt þér við útflutninginn?
Bílasala Reykjavíkur skráir bílinn, kannar endurgreiðslumöguleika og aðstoðar við samskipti og samninga við lánafyrirtæki og flutningsaðila.

Starfsmenn Bílasölu Reykjavíkur hafa þekkingu á öllum þáttum útflutnings bifreiða. Á undanförnum árum hefur bílasalan liðsinnt mörgum viðskiptavinum sínum við innflutning á bifreiðum og mun sú reynsla nýtast vel. Fyrirtækið hefur meðal annars átt farsælt samstarf við Makina í Belgíu. Makina er stór og traustur bílamiðlari sem starfað hefur við heildsölu á evrópskum bílamarkaði um árbil. Nú gefst þeim, sem vilja selja bíla sína úr landi, tækifæri til að njóta þessa trausta samstarfs.

Hvernig getur þú fundið út hvort ökutæki þitt sé vænlegt til útflutnings?
Fyrsta skrefið er að skrá bílinn hjá Bílasölu Reykjavíkur. Það er hægt að gera með því að hringja í síma 587 8888, koma að Bíldshöfða 10 eða skrá hann hér á vefnum. Starfsmenn bílasölunnar ljósmynda bílinn og kanna síðan endurgreiðslumöguleikana. Ef bíllinn er vænlegur til útflutnings meta fulltrúar Makina bílinn og gera þér verðtilboð. Þó af útflutningi verði ekki er bíllinn strax skráður til sölu í söluskrá hjá Bílasölu Reykjavíkur sem er ein af stærstu bílasölum landsins. Vel gæti verið að hægt sé að koma bílnum þínum í verð hér heima.